top of page
Súperþrek í vatni
Ef þig langar í æfingu sem er hamagangur, erfið með þol og styrktaræfingum sem fara betur með liðina, verandi í vatni. Þá er Súperþrek í vatni eitthvað fyrir þig. Komdu í ókeypis prufutíma ...ef þú þorir🦾
Mán og miðvikudagar kl.19:30 í Mörkinni Suðurlandsbraut 64 á vegum HeilsuKlasans.
Ertu viss um að þora?
Súperþrek í vatni er stig 4 af fjórum sem HeilsuKlasinn býður upp á. Súperþrekið eru virkilega erfiðir tímar fyrir þol, og vöðva. Þú getur búist við því að vera búinn á því í upphandleggsvöðvum, lærum, kvið og vera ansi andstutt/-ur.
Ef þú ert að æfa stíft nú þegar, skelltu þér þá í prufutíma. Ef þú hefur lítið verið að æfa er mögulega öruggara að prófa stig 2 eða 3 fyrst.

bottom of page


