Hvað mælir líkamsmælingartækið?
Margir halda að líkamsmælingartæki sýni aðeins líkamsþyngd eða fituprósentu. Í raun geta nútímaleg líkamsmælingartæki veitt mun ítarlegri upplýsingar um samsetningu líkamans og gefið góða mynd af því hvernig heilsan og líkaminn þróast yfir tíma.
Þessar upplýsingar geta verið gagnlegar hvort sem markmiðið er að léttast, byggja upp vöðva, bæta heilsuna eða fylgjast með árangri af þjálfun.
1. Líkamsþyngd
Líkamsþyngdin er einfaldlega heildarþyngd líkamans.
Þó að hún sé gagnleg segir hún ekki hvort breytingar stafi af fitu, vöðvum eða vatni. Þess vegna er mikilvægt að skoða hana í samhengi við aðrar mælingar.
Mælingar á baðvigtinni heima gefur okkur því litla innsýn inn í hvort fólk sé að missa fitu eða hvort mögulega sé fólk að tapa vökva eða vöðvum.
2. Fituprósenta (%)
Fituprósentan sýnir hversu stór hluti líkamsþyngdarinnar er fita.
Tveir einstaklingar geta vegið nákvæmlega jafn mikið en haft mjög ólíka fituprósentu og þar með ólíka líkamsamsetningu.
Þess vegna gefur fituprósentan oft mun betri mynd af framförum en líkamsþyngdin ein og sér.
Fituprósentan er gjarnan skoðuð í takt við vökvahlutfall og fitumassa auk vöðvamassa.
3. Fitumassi (kg)
Fitumassi segir hversu mörg kíló af líkamanum eru fita.
Þessi tala hjálpar til við að fylgjast með hvort fitutap sé raunverulega að eiga sér stað, jafnvel þótt þyngdin á vigtinni breytist lítið.

4. Fitufrír massi
Fitufrír massi er allt annað en fita.
Hann samanstendur meðal annars af:
Vöðvum
Beinum
Líffærum
Vatni
Bandvef
Þessi mæling gefur góða heildarmynd af líkamsbyggingunni.
5. Vöðvamassi
Vöðvamassi segir til um hversu mikið magn af vöðvum líkaminn hefur.
Vöðvar skipta gríðarlega miklu máli fyrir lífsgæði í daglegu lífi. Til að eiga auðveldara með vinnu, leik og störf. En einnig til að eiga betri efri ár þegar að því kemur.
Sterkir vöðvar gefa okkur styrk til að standa upp, teygja okkur eftir hlutum og allt annað sem við framkvæmum. Einnig hefur styrkur áhrif á jafnvægi og liðleika. Rannsóknir benda einnig til bættra lífsgæða og lengri lífaldurs hjá fólki sem er með meiri vöðvastyrk.
Við fitutap er markmiðið yfirleitt að missa sem minnsta mögulega vöðvamassa en sem mest af fitu. Vegna mikilvægis vöðva fyrir daglega virkni og framtíðar lífsgæða.

6. Dreifing vöðvamassa
Mörg líkamsmælingartæki geta sýnt hvernig vöðvamassinn skiptist á milli:
Hægri handleggs
Vinstri handleggs
Hægri fótar
Vinstri fótar
Vöðvamassa kviðs
Þetta getur hjálpað til við að greina hvort ójafnvægi sé á milli líkamshluta og hvort ástæða sé til að leggja meiri áherslu á ákveðna vöðvahópa í þjálfun.
Mörgum kemur á óvart þegar þeir sjá að annar handleggurinn eða fótleggurinn er sterkari eða með meiri vöðvamassa en hinn.
Smávægilegur munur er eðlilegur, sérstaklega hjá fólki sem notar ríkjandi hönd meira.
Ef munurinn verður hins vegar mikill getur verið skynsamlegt að vinna markvisst að því að jafna styrk og vöðvamassa. Það getur bætt líkamsholningu, dregið úr álagi á liðamót, minnkað eymsli og jafnvel minnkað líkur á meiðslum.
7. Innri kviðfita (Visceral Fat)
Innri kviðfita er sú fita sem safnast í kringum innri líffæri.
Ólíkt fitu undir húð og sést hún ekki utan á líkamanum.
Hátt magn innri kviðfitu tengist meðal annars aukinni hættu á:
Hjarta- og æðasjúkdómum
Sykursýki af tegund 2
Háum blóðþrýstingi
Efnaskiptasjúkdómum
Þess vegna er þessi mæling mikilvægur hluti af heildarmati á heilsu.
Innri kviðfita er gjarnan kölluð hættulega fitan, en hún sést ekki utan á fólki.

8. Vökvahlutfall
Vatn gegnir veigamiklu hlutverki í nær allri starfsemi líkamans. Vökvi gefur okkur innsýn meðal annars í jafnvægi á fitu og vöðvum auk stærð vöðva.
Vökvabúskapur getur haft áhrif á margar aðrar mælingar og því er mikilvægt að framkvæma mælingar við svipaðar aðstæður í hvert sinn.
Vökvahlutfall líkamans gefur einnig innsýn í breytingar á öðrum tölum sem geta komið fram við mælingu.
9. Grunnbrennsla (BMR)

Grunnbrennsla segir til um hversu margar hitaeiningar líkaminn þarf til að halda lífsnauðsynlegri starfsemi gangandi í algjörri hvíld. Þ.e.a.s þegar þú ert að horfa á Netflix upp í sófa, hversu margar hitaeiningum ertu að brenna.
Vöðvamassi hefur mikil áhrif á grunnbrennslu. Því meiri vöðvamassa sem þú hefur, því meiri orku notar líkaminn yfir daginn.
Þess vegna er mikilvægt að reyna að viðhalda eða auka vöðvamassa þegar unnið er að fitutapi. Þar sem auknir vöðvar => Aukin grunnbrennsla => Fitutap eykst jafnvel við hvíld
Grunnbrennslu hitaeiningarnar fara í:
Öndun
Hjartslátt
Starfsemi líffæra
Viðhald líkamshita
Grunnbrennslan er meðal annars háð aldri, erfðum, hormónum, kyni, líkamsstærð og sérstaklega vöðvamassa. Einnig tengist grunnbrennsla mataræði og hvort líkaminn hafi reglulega fengið inn næringu eða reglulega verið settur í sveltiástand.
Þessi tala getur verið gagnleg þegar verið er að skipuleggja mataræði eða orkuinntöku. Það er ýmisslegt hægt að gera til að hafa áhrif á grunnbrennslu og til að hækka hana. En það er meðal annars þungar lyftingar, huga að svefninum, mataræðinu og streitunni.

10. BMI – Líkamsþyngdarstuðull
BMI er reiknað út frá hæð og þyngd.
Í dag er BMI lítið notað þar sem það segir ekki til um hlutfall fitu og vöðva.
Íþróttafólk með mikinn vöðvamassa getur til dæmis verið með hátt BMI án þess að vera með of mikla fitu.
Þess vegna er mikilvægt að túlka BMI samhliða öðrum mælingum.
BMI er almennt óheppilegur stuðull fyrir einstaklinga til að pæla í þar sem stuðullinn var hannaður til að bera saman hópa.
Af hverju skiptir máli að skoða allar mælingarnar saman?
Engin ein tala segir alla söguna.
Ímyndum okkur tvo einstaklinga sem báðir vega 80 kg.
Einstaklingur A er með 18% fitu og mikinn vöðvamassa.
Einstaklingur B er með 35% fitu og mun minni vöðvamassa.
Þrátt fyrir sömu líkamsþyngd eru líkamsamsetning þeirra og heilsufarslegar forsendur mjög ólíkar.
Þess vegna er mun gagnlegra að skoða heildarmyndina með fagaðila sem kann að lesa úr niðurstöðunum heldur en að einblína á eina tölu.

Mikilvægt að muna
Líkamsmælingartæki gefa mat á líkamsamsetningu. Niðurstöður geta verið undir áhrifum frá meðal annars:
Vökvastöðu
Mat og drykk
Hreyfingu
Tíðahring hjá konum
Tíma dags
Til að bera saman niðurstöður er best að framkvæma mælingarnar við svipaðar aðstæður í hvert sinn, til dæmis á svipuðum tíma dags og með svipaða vökvastöðu.
Mælingardagurinn
Mikilvægt er að reyna að hafa aðstæðurnar sem líkastar þegar mælingar eru teknar. Gott er því að huga að eftirfarandi þáttum fyrir mælingardaginn:
Vertu í svipuðum fötum í hvert skipti t.d. léttum íþróttafötum
Ekki æfa fyrir mælinguna né fyrr um daginn. Mátt æfa eftir mælinguna
Taktu með þér nesti til að borða strax eftir mælingu, þar sem oftast er best að þú sért fastandi 2 klst fyrir
Hafa í huga tíðarhring
Þú gætir þurft að fara úr skóm og sokkum

Ekki láta eina tölu skilgreina árangurinn
Líkamssamsetningarmæling er frábært tæki til að fylgjast með framförum, en hún er aðeins eitt verkfæri af mörgum.
Mikilvægt er einnig að horfa á:
Hvernig þér líður.
Hvort þú sért orðinn sterkari.
Hvort þolið hafi aukist.
Hvort fötin passi öðruvísi.
Hvort daglegar athafnir séu orðnar auðveldari.
Þegar allar þessar upplýsingar eru skoðaðar saman fæst mun skýrari mynd af raunverulegum árangri en ef einblínt er eingöngu á töluna á vigtinni.
Samantekt
Líkamsmælingartæki mæla mun meira en líkamsþyngd. Þau geta gefið ítarlega mynd af fituprósentu, fitumassa, vöðvamassa, dreifingu vöðva milli líkamshluta, innri kviðfitu, grunnbrennslu, vatnsmagni, beinmassa og fleiri þáttum sem skipta máli fyrir heilsu og árangur.
Þegar þessar upplýsingar eru skoðaðar saman verður mun auðveldara að sjá raunverulegar framfarir og taka upplýstar ákvarðanir um þjálfun, mataræði og lífstíl.





Comments