Líkamsmælingartækið, fituklípa, málband eða baðvigt? Hver er munurinn?
Þegar fólk fylgist með árangri sínum í sinni heilsuvegferð getur það verið frumskógur að átta sig á hvernig best sé að fylgjast með fitutapi, uppbyggingu vöðvamassa eða hvort maður standi í stað.
Líkamsmæling – heildarmynd af líkamanum
Líkamssamsetningarmæling (líkamsmæling á tanítu) er ein ítarlegasta aðferðin til að meta samsetningu líkamans. Mælingin byggir á rafleiðni, þar sem örlítið og öruggt rafboð fer í gegnum líkamann til að meta samsetningu hans.
Það fer eftir tækinu hvaða upplýsingar eru í boði, en flest nútímaleg tæki geta meðal annars mælt:
Heildar Líkamsþyngd (kg)
Fituprósentu (%)
Fitumassa (kg)
Fitufrían massa (kg)
Vöðvamassa (kg)
Dreifingu vöðvamassa í handleggjum, fótleggjum og á kvið
Hlutfall hægri og vinstri hliðar
Innri kviðfitu (visceral fat)
Heildarvatnsmagn líkamans
Grunnbrennslu
BMI (líkamsþyngdarstuðul)
Þessar upplýsingar gera kleift að sjá hvernig líkaminn er að breytast, en ekki bara hvort heildarlíkamsþyngd hafi breyst.
Til dæmis getur einstaklingur misst 5 kg af fitu og bætt við sig 3 kg af vöðvum. Baðvigtin sýnir aðeins 2 kg þyngdartap, en líkamssamsetningarmæling sýnir að breytingin er í raun mjög jákvæð.
Kostir líkamsmælingartækisins
Ert í fötum, þarft stundum að fara úr einungis sokkunum
Gott að vera í íþróttafötum eða alltaf í sömu fötunum við mælingar
Upplifun kúnna er almennt betri af að stíga á tækið miðað við fituklípu eða málband

Fituklípan – Óheppileg í flestum tilfellum
Fituklípa mælir þykkt fitulags undir húð á ákveðnum stöðum líkamans.
Út frá þessum mælingum er hægt að áætla fituprósentu.
Kostir fituklípu eru meðal annars:
Getur verið nokkuð nákvæm þegar framkvæmd er af reyndum aðila.
Hentar vel til að fylgjast með breytingum yfir tíma ef sami einstaklingur framkvæmir mælingarnar á sama stað líkamans.
Takmarkanir eru hins vegar:
Hún mælir aðeins fitu undir húð en ekki innri kviðfitu.
Gefur litlar upplýsingar um vöðvamassa eða dreifingu hans.
Nákvæmnin fer mikið eftir reynslu þess sem framkvæmir mælinguna og hvort mælt sé á nákvæmlega sama stað
Erfiðara getur verið að framkvæma nákvæmar mælingar hjá einstaklingum með mjög háa fituprósentu.

Aðrir ókostir fituklípunnar
Fituklípan er á undanhaldi sem búnaður þjálfara til að mæla kúnnana sína. En það er meðal annars vegna þess að fólk getur upplifað fituklípuna sem niðurlægjandi og óþægilega aðferð. Fólk þarf gjarnan að fara úr bolnum og vera léttklædd, jafnvel á baðfötum eða nærfötum eftir þeim sem stöðum sem þjálfarinn vill mæla.
Fituklípan hentar því almennt illa fyrir mælingar á almenning en getur verið heppileg fyrir ákveðna aðila við ákveðnar aðstæður.
Málbandið – einfalt en öflugt verkfæri
Margir vanmeta hvað málband getur sagt.
Með því að mæla reglulega ummál, til dæmis á:
Mitti
Yfir brjóstkassa
Rass
Lærum
Upphandleggjum
er hægt að sjá breytingar sem baðvigtin sýnir ekki.
Það er algengt að fólk haldi sömu þyngd en mittismálið minnki um nokkra sentímetra vegna þess að fita minnkar á sama tíma og vöðvamassi eykst.
Málbandið er því frábært viðbótartæki, sérstaklega þegar það er notað samhliða öðrum mælingum.
Fyrir þau sem skella sér ekki reglulega á líkamssamsetningartæki þá mæli ég með (ef þú vilt fylgjast með vöðvamassa og fitutapi) að mæla sig reglulega með málbandi.

Baðvigtin – segir aðeins hvað þú vegur
Flest eigum við baðvigt heima og hún getur verið gagnleg til að fylgjast með líkamsþyngd.
En hún getur ekki sagt þér hvað veldur breytingunni. Þar sem hún mælir einungis heildarmassa þess sem stígur upp á vigtina. Þ.e.a.s heildarlíkamsþyngd sem getur hafa aukið sinn vöðvamassa en misst fitu, en þá stendur kannski vigtin í stað.
Ef þyngdin breytist um 2 kg veit baðvigtin ekki hvort breytingin stafar af:
Fitu
Vöðvum
Vatni
Eða blöndu af þessu öllu.
Þess vegna getur verið villandi að meta árangur eingöngu út frá tölunni á vigtinni.

Hvaða aðferð er best?
Það fer eftir markmiðinu.
Ef markmiðið er einfaldlega að fylgjast með líkamsþyngd óháð vöðvum og fitu, getur baðvigt verið nóg.
Ef markmiðið er að sjá hvort ummálið sé að minnka getur málband verið frábær kostur.
Ef markmiðið er einungis að fylgjast með fituprósentu getur fituklípa verið gagnleg, sérstaklega ef sami sérfræðingur framkvæmir mælingarnar í hvert sinn.
En ef markmiðið er að fá sem heildstæðasta mynd af líkamanum, fylgjast með breytingum á fitu, vöðvamassa, innri kviðfitu, grunnbrennslu og vöðvadreifingu milli líkamshluta, þá veitir líkamssamsetningarmæling mun ítarlegri upplýsingar.
Besta leiðin er oft að nota fleiri en eina mæliaðferð
Engin mæliaðferð er fullkomin ein og sér.
Þess vegna velja margir að fylgjast með framförum með fleiri en einni aðferð, til dæmis:
Líkamssamsetningarmæling á 4–8 vikna fresti.
Ummálsmælingum með málbandi.
Reglulegum myndum af framförum.
Þyngd á baðvigt.
Frammistöðu í æfingum, svo sem auknum styrk eða bættu þoli.
Þegar allar þessar upplýsingar eru skoðaðar saman fæst mun nákvæmari mynd af framförum en með einni mælingu einni saman.

Reglulega!
Líkamssamsetningarmæling, fituklípa, málband og baðvigt hafa öll sitt hlutverk. Það mikilvægasta er að velja þá mæliaðferð sem hentar markmiðunum þínum og nota hana reglulega við svipaðar aðstæður.
Mundu að árangur snýst ekki aðeins um hvað stendur á vigtinni. Betri heilsa, meiri styrkur, aukinn vöðvamassi, minni fituprósenta og bætt líðan eru allt breytingar sem skipta miklu meira máli til lengri tíma litið.





Comments