top of page
Search

Hversu oft ættir þú að fara í líkamsmælingu?

Aug 4
2 min read

Þegar fólk byrjar að huga að heilsunni er algengt að stíga reglulega á baðvigtina heima og fylgjast örvæntingarfull/-ur/-t með tölunni rísa og hníga. En talan á vigtinni segir aðeins lítinn hluta af sögunni.


Líkamssamsetningarmæling eða líkamsmæling sem fer fram á svokallaðri tanítu, gefur mun ítarlegri upplýsingar um líkamann og getur sýnt framfarir sem hefðbundin baðvigt nær ekki að greina. Hún getur meðal annars mælt:

  • Fituprósentu (%)

  • Fitumassa (kg)

  • Vöðvamassa (kg)

  • Dreifingu vöðvamassa milli hægri og vinstri handleggs og fótar

  • Innri kviðfitu (visceral fat)

  • Grunnbrennslu

  • Heildarvatnsmagn í líkamanum

  • Líkamsþyngdarstuðul (BMI)


Að skella sér í mælingu á líkamsmælingartæki gefur okkur meiri upplýsingar um hvort þú sért að missa fitu eða vöða. Oft á tíðum telur fólk sig vera að missa helling af fitu en hefur aðallega verið að missa vöðva, sem auðvitað enginn vill. Þar sem við þurfum vöðva til allra almennra athafna dagslegs lífs og til að geta gert allt það skemmtilega sem lífið býður upp á 😊🦾


En hversu oft er skynsamlegt að fara í mælingu?

Almenna reglan: á 4–8 vikna fresti

Fyrir flesta er mælt með að fara í líkamssamsetningarmælingu á 4–8 vikna fresti.

Líkaminn breytist sjaldan það hratt að marktækar breytingar sjáist frá viku til viku. Með því að bíða í nokkrar vikur færðu raunhæfari mynd af því hvernig þjálfunin og mataræðið eru að skila árangri.

Ef mælt er of oft geta eðlilegar sveiflur í vökvajafnvægi líkamans haft meiri áhrif á niðurstöðurnar en raunverulegar breytingar á fitu eða vöðvamassa.


Ef markmiðið er fitutap

Ef þú ert að vinna markvisst að því að minnka fitumassa getur verið hentugt að mæta á um það bil 4–6 vikna fresti til að halda sér við efnið og vita hvort þú sért raunverulega að missa fitu fremur en vöðva og svo við getum rætt málin ef svo er ekki.


Það sem við viljum sjá gerast þegar fólk missir fitu er að halda í sem mestu vöðva á meðan því ferli stendur. Jafnvel að auka vöðvastyrk á meðan sem enn frekar ýtir undir fitutap.


Ef við horfum einungis í heildar líkamsþyngd, það segir okkur ekki hversu mikla fitu þú missir og hversu mikla vöðva þú ert að byggja upp.


Fólk getur staðið í stað í heildar líkamsþyngd (á baðvoginni heima) en sjáum fitutap og vöðvaaukningu á líkamsmælingartækinu. Því ber að fagna en ekki að berja sig niður fyrir að standa í stað á baðvoginni.

Ef markmiðið er að byggja upp vöðva

Þegar markmiðið er að auka vöðvamassa gerast breytingarnar oft hægar.

Þá getur verið nóg að mæta á 6–8 vikna fresti og fylgjast með:


Upplýsingar frá líkamsmælingartækinu geta hjálpað til við að laga æfingaáætlunina og minnka líkur á ójafnvægi eða meiðslum.


Munur á milli hægri og vinstri hliðar

Ef þú hefur fengið úr mælingu að munur sé á vöðvastyrk á vinstri og hægri hlið. Getur verið gott að mæta á 6-8 vikna fresti til að taka stöðuna. Auðvitað með gott styrktar og æfingarprógramm við höndina.



 
 
 

Comments


bottom of page