top of page
Search

Hvað er Macros - og af hverju fannst mér þetta svona ruglingslegt?

Ef þú hefur einhvern tímann reynt að kynna þér „macros“ þá skil ég þig alveg ef þér fannst þetta flókið. Ég man mjög vel þegar ég byrjaði sjálf að skoða þetta og fannst eins og allir væru að tala óskiljanlegt tungumál. Prótein, kolvetni, fita, prósentur, kaloríur, tracking, MyFitnessPal… og allir virtust vera með mismunandi reglur.


Ég fór meira að segja á námskeið til að reyna að skilja þetta betur — en mér fannst samt vanta eitthvað. Það var oft talað mjög tæknilega eða gert ráð fyrir að maður vissi nú þegar hvernig allt virkaði. Ég sat oft eftir með fleiri spurningar en svör.

Þess vegna ákvað ég síðar að búa til námskeið sjálf.


Ekki námskeið sem flækir hlutina meira — heldur námskeið sem útskýrir þetta á einfaldan, skýran og raunhæfan hátt fyrir venjulegt fólk sem vill bara skilja hvernig á að borða betur og líða betur.


En hvað eru macros eiginlega?

„Macros“ er stytting á macronutrients eða orkuefnum. Það eru þrír meginflokkar næringarefna sem líkaminn notar til orku:

  • Prótein

  • Kolvetni

  • Fita

Allur matur sem við borðum samanstendur af þessum efnum í mismiklu magni.


Prótein

Prótein hjálpar meðal annars við:

  • vöðvauppbyggingu

  • bata

  • seddu

  • að halda styrk og massa


Kolvetni

Kolvetni eru helsti orkugjafi líkamans og skipta miklu máli fyrir:

  • orku

  • æfingar

  • einbeitingu

  • daglega virkni


Fita

Fita er líka lífsnauðsynleg og tengist meðal annars:

  • hormónastarfsemi

  • heilastarfsemi

  • upptöku vítamína

  • seddu


Þegar fólk „telur macros“ er það í raun bara að fylgjast betur með hlutföllum þessara næringarefna — ekki til að verða fullkomið heldur til að skilja betur hvað líkaminn þarf.


Af hverju hjálpar þetta svo mörgum?

Mjög margir hafa prófað endalausa megrunarkúra, bannað sér mat eða hoppað á milli mismunandi reglna án þess að skilja í raun hvernig næring virkar.


Macros kenna þér hins vegar:

  • hvernig matur hefur áhrif á líkamann

  • hvernig þú getur borðað í meira jafnvægi án öfga

  • hvernig þú getur náð markmiðum án þess að útiloka allt sem þér finnst gott


Fyrir marga er þetta í fyrsta skiptið sem fólk nær jafnvægi í að auka heilsu sína og ná langvarandi árangri og breytingu á lífstíl.


Ástæðan fyrir að ég bjó til mitt eigið námskeið

Eftir að hafa sjálf upplifað hvað þetta gat verið ruglingslegt vildi ég búa til eitthvað sem ég hefði sjálf viljað fá þegar ég byrjaði.


Þess vegna er námskeiðið mitt byggt upp með:

  • einföldum skýringum

  • video fyrirlestrum

  • skref fyrir skref leiðbeiningum

  • raunhæfri nálgun

  • og miklu aðhaldi


Ég veit að það er auðvelt að missa móðinn þegar maður er einn að reyna að finna út úr öllu. Þess vegna legg ég mikla áherslu á að fólk upplifi að ég sé með þeim í ferlinu — ekki bara að það kaupi námskeið og sé svo skilið eftir eitt.

Markmiðið mitt er að þú skiljir loksins hvernig þetta virkar og getir notað það í þínu raunverulega lífi án þess að vera stöðugt í átaki eða á matarkúr.


Fólk upplifir macros mataræðið hjá mér ekki sem matarkúr/átak heldur sem heilbrigða lífstílsbreytingu sem endist út lífið ❤️

Macros mælingar á ekki að vera flókin. Þegar macros hlutföll, mælingar og fyrirkomulag er útskýrt rétt geta þau í raun gert næringu miklu einfaldari og gefið okkur svigrúm í lífinu tengt næringu og heilsu.


 
 
 

Comments


bottom of page